2 sep. 2021

Valur hefur dregið b lið sitt úr keppni 1. deildar kvenna fyrir komandi leiktíð.

Við þetta fækkar leikjum um tvo á hvert lið, en eftir eru 11 lið sem leika tvöfalda umferð, samtals 20 leikir á lið. Keppni 1. deildar kvenna hefst föstudaginn 1. október þegar Ármann tekur á móti nýliðum Þórs Ak. í íþróttahúsi Kennaraháskólans.