10 sep. 2021

 

Haustfjarnám 1.  2. og 3. stigs ÍSÍ hefst mánudaginn 27. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. og 3. stigi.  Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.  
Nám allra stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur.  Námið hefur verið afar vinsælt til fjölda ára og þátttakendur komið frá mörgum íþróttagreinum.  Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 34.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði.  Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin.  Gjaldið á 3. stig er kr. 40.000.- Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi. 
Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.    
 
Uppl. um skráningu í haustfjarnámið verða sendar út á næstu dögum. 
 
Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 4601467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is