1 okt. 2021Um helgina fara fram hinir árlegu leikir Meistarar meistaranna en það eru leikir íslandsmeistara síðasta árs gegn bikarmeisturum síðasta árs. Í ár verður leikið hjá körlum í Icelandic Glacial-höllinni á heimavelli Íslandsmeistara Þórs Þorlákshafnar en þá mætast Þór Þ. og bikarmeistarar ársins Njarðvík.

Leikur kvenna fer svo fram á sunnudaginn kemur kl. 20:15 í Valshöllinni þegar Valur mætir Haukum.

Meistarakeppni karla: 
Þór Þ. - Njarðvík
Laugardaginn 2. október kl. 19:45 
Icelandic Glacial-höllin, Þorlákshöfn
Miðasala á Stubb

Leikurinn verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport.