25 okt. 2021

Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið liðið sitt fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni EuroBasket Women´s 2023 sem hefst núna í nóvember. 

Leikið verður í núna í fyrsta landsliðsglugganum í undankeppninni núna í nóvember. Næstu gluggar verða svo í nóvember 2022 og febrúar 2023 en mótherjar Íslands í riðlinum eru Spánn, Ungverjaland og Rúmenía. Leikið er heima og að heiman og fer efsta liðið beint á EM2023 en möguleiki er fyrir besta annað sætið að fylgja með á lokamótið (fjögur lið með bestan árangur úr öllum undanriðlunum tíu).

Núna í nóvember á Ísland sína fyrstu tvo leiki, fyrst verður leikið á útivelli gegn Rúmeníu þann 11. nóvember í Búkarest, og svo hér heima gegn Ungverjalandi. Heimaleikurinn fer fram í Ólafssal á Ásvöllum sunnudaginn 14. nóvember kl. 20:00.

Liðið mun ferðast út sunnudaginn 7. nóvember og vera við æfingar ytra fram að leik.

Ólafur Jónas nýr aðstoðarþjálfari:
Ólafur Jónas Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Vals, hefur tekið að sér aðstoðarþjálfarahlutverk í liðinu, og verður ásamt Halldóri Karli Þórsyni, í aðstoðarþjálfarateymi landsliðsins. Danielle Rodriguez sem hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins flutti í vor til Bandaríkjana en hún tók að sér aðstoðarþjálfarastöðu við University of San Diego háskólanum í Kaliforníu. KKÍ þakkar henni kærlega fyrir vel unnin störf og velfarnaðar í framtíðinni.


Íslenska liðið er þannig skipað: 

Nafn · Lið (Landsleikir)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (Nýliði)
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (2)
Bríet Sif Hinriksdóttir · Haukar (6)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (8)
Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (Nýliði)
Embla Kristínardóttir · Skallagrímur (21)
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (Nýliði)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (25)
Helena Sverrisdóttir · Haukar (77)
Lovísa Björt Henningsdóttir · Haukar (6)
Sara Rún Hinriksdóttir · Phoenix Constanta, Rúmenía (23)
Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (21)

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson.

Hildur Björg Kjartansdóttir, Val, og Isabella Ósk Sigurðardóttir, Breiðablik, eru báðar meiddar og geta ekki leikið. Þá hefur Guðbjörg Sverrisdóttir einnig verið að glíma við meiðsli að undanförnu og er að hefja leik að nýju. Sigrún Björg Ólafsdóttir, sem leikur í háskóla í USA, var valin í hópinn, en gat ekki tekið þátt að þessu sinni v/ anna með skólanum úti.



Heimasíða keppninnar: www.fiba.basketball/womenseurobasket/2023/qualifiers

#korfubolti #EuroBaskeWomen