16 des. 2021Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2021 af KKÍ. Þetta er í 24. skipti sem valið er tvískipt milli karla og kvenna eða allt frá árinu 1998.

Körfuknattleikskona og karl ársins eru valin í kosningu af stjórn og starfsmönnum KKÍ, afreksnefnd KKÍ og landsliðsþjálfurum. Elvar Már er nú að fá tilnefninguna í fyrsta skipti. Sara Rún er að hljóta nafnbótina í annað sinn en hún var einnig kjörin best á síðasta ári. 

Val á körfuknattleikskonu ársins 2021:

Körfuknattleikskona ársins 2021:
1. Sara Rún Hinriksdóttir   
2. Helena Sverrisdóttir      
3. Þóra Kristín Jónsdóttir    
 
Aðrar sem fengu atkvæði í stafrófsröð:
Birna Valgerður Benónýsdóttir, Dagbjört Dögg Karlsdóttir, Dagný Lísa Davíðsdóttir, Hallveig Jónsdóttir, Isabella Ósk Sigurðardóttir, Lovísa Björt Henningsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir.

Sara Rún Hinriksdóttir · Phoenix Constanta, Rúmeníu
Sara Rún er „Körfuknattleikskona ársins“ árið 2021 og er Sara Rún að hljóta viðurkenninguna annað árið í röð. Sara Rún sem er uppalin með Keflavík lék á síðustu leiktíð með Haukum og átti mjög gott tímabil sem endaði með því að hún var valin Besti leikmaður deildarinnar á lokahófi KKÍ. Sara Rún lék með landsliðinu í febrúar 2021 í landsliðsglugganum sem fram fór í Slóveníu og var ein af lykilmönnum íslenska liðsins líkt og að undanförnu. Fyrir þetta tímabil gerði hún nýjan samning við lið Phoenix Constanta í Rúmeníu og leikur því sem atvinnumaður þar í vetur. Sara Rún hefur átt góða byrjun þar, er með 14 stig að meðatali eftir níu leiki og er á topplista yfir deildina í stigaskori og er meðal leiðtoga í flest öllum tölfræðiþáttum í sínu liði. Landsliðið lék að tvo landsleiki í nóvember í nýrri undankeppni EM kvenna 2023 og þar var Sara Rún öflug og leiðir liðið í stigaskorun. Sara Rún hefur verið að sýna mikla framför í sínum leik og verið að taka sér leiðtogahlutverk með landsliðinu og því ljóst að á næstu árum verður hún áfram ein af mikilvægustu leikmönnum landsliðsins.

Helena Sverrisdóttir · Haukar
Helena hefur lengi verið meðal bestu leikmanna landsins en hún hefur áður hampað nafnbótinni „Körfuknattleikskona ársins” 12 sinnum síðastliðin 17 ár sem er einstakt afrek. Helena sýndi frábæran leik í lok síðasta keppnistímabils þegar hún átti stóran þátt í sigri Vals á íslandsmótinu eftir úrslitakeppni og úrslitaseríu gegn Haukum. Í úrslitakeppninni var Helena bæði framlagshæst og frákasta hæst að meðaltali og næst stiganæst í liðinu að meðaltali í leik. Helena missti af báðum landsliðsgluggunum þetta árið v/ meiðsla en með landsliðinu hefur Helena verið í leiðtogahlutverki á undanförnum árum. Helena hélt fyrir þetta tímabil heim til síns gamla félags Hauka og fór fyrir liði sínu sem tók þátt í Evrópukeppni FIBA - EuroCup kvenna í ár. Í fyrstu viðureigninni í forkeppinni í haust átti hún magnaða frammistöðu í báðum leikjunum og þó sérstaklega þeim síðari sem fram fór á útivelli þar sem Helena tryggði Haukum sæti í riðlakeppninni sjálfri með ótrúlegum leik og endaspretti. Meiðsl hafa sett strik í reikninginn á tímabilinu bæði með landsliðinu og félagsliðinu en Helena hefur sýnt frábæran leik þegar hún hefur verið heil og sýnt hversu mikilvæg hún er fyrir sín félagslið og íslenska landsliðið.

Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörku
Þóra Kristín hefur verið í leiðtogahlutverki með félagsliði sínu í Haukum á undanförnum árum og hefur verið mjög öflug í deildinni hér heima. Þóra Kristín valin í úrvalslið deildarinnar í fyrra í þriðja skiptið í röð. Hún hélt utan til náms í Danmörku í haust og leikur nú með AKS Falcons í Kaupamannahöfn. Þar hefur Þóra Kristín verið frábær fyrir sitt lið og leikið mjög vel með liðinu sem er taplaust í deildinni í vetur. Þóra Kristín hefur verið að skila stóru hlutverki og verið ein af leiðtogum liðsins. Með landsliðinu hefur Þóra Kristín verið byrjunarliðsmaður og leyst bakvarðarhlutverkið um leið og stýrt leik liðsins með glæsibrag og verður Þóra Kristín áfram á næstu árum mikilvæg fyrir landsliðið.


Val á körfuknattleikskarli ársins 2021:

Körfuknattleikskarl ársins 2021:
1. Elvar Már Friðriksson      
2. Martin Hermannsson    
3. Tryggvi Snær Hlinason   
 
Aðrir sem fengu atkvæði í stafrófsröð:
Hörður Axel Vilhjálmsson, Jón Axel Guðmundsson, Styrmir Snær Þrastarson og Ægir Þór Steinarsson.

Elvar Már Friðriksson · Antwerp Giants, Belgíu 
Elvar Már er að hljóta nafnbótina „Körfuknattleiksmaður ársins“ í fyrsta sinn. Elvar Már átti frábært ár í fyrra þegar hann lék heilt tímabil með BC Siauliai í efstu deild í Litháen. Elvar Már átti hvern frábæra leikinn af öðrum fyrir sitt lið en liðið átti brösugt upphaf á tímabilinu þrátt fyrir það. Elvar átti í kjölfarið stóran hlut í velgengni liðsins þegar á leið því liðið fór á fleygiferð og fór upp úr neðri hlutanum og alla leið inn í úrslitakeppnina með því að enda í 7. sæti, einum leik frá 5. sætinu. Elvar Már var með frábæra tölfræði og framlag til liðsins og var á endanum valinn „MVP - Leikmaður ársins“ í litháensku deildinni og varð hann þar með aðeins fimmti erlendi leikmaðurinn í sögu þessarar miklu körfuknattleiksþjóðar til að hljóta þá viðurkenningu í karladeildinni. Elvar Már gerði í kjölfarið samning við Antwerp Giants í Belgíu sem hefur verið eitt af stóru liðunum þar í landi og leikur með þeim þar í landi og í FIBA EuroCup í vetur. Með íslenska landsliðinu tók Elvar Már þátt í öllum leikjum liðsins, bæði í febrúar, sumar og í haust og var meðal bestu manna liðsins í hvert sinn. Hann átti mjög góða leiki fyrir Ísland á fyrri hluta ársins og var stór þáttur í því afreki landsliðsins að tryggja sér sæti í riðlakeppninni í undankeppni HM sem nú fer fram.

Martin Hermannsson · Valencia Basket, Spánn
Martin sem hefur verið hlotið nafnbótina tvisvar á undanförnum tveim árum og er annar í kjörinu nú. Martin hefur verið burðarás íslenska landsliðsins og einn mikivægasti leikmaður þess. Hann hefur tekið stórstígum framförum í leik sínum ár eftir ár og sýnir framganga hans sem atvinnumaður það berlega. Martin er á sínu öðru ári með Valencia sem er eitt af stóru liðunum á Spáni, en spænska deildin er sú sterkasta í Evrópu. Þar er Martin lykilmaður og hefur verið að leika stórt hlutverk í liði sínu sem sýnir berlega hversu öflugur leikmaður hann er orðinn og hversu vel hann er að leika. Tímabilið í fyrra með Valencia var langt og strangt á Spáni v/ COVID en liðið lék einnig í EuroLeague, og hafði það tvennt áhrif á þátttöku hans með landsliðinu bæði í febrúar og ágúst. Martin lék með landsliðinu í landsliðs glugganum í nóvember 2021 og var án vafa maður leiksins þegar íslenska liðið vann gríðarlega mikilvægan sigur á Hollandi á útivelli. Þar skoraði Martin 27 stig og sýndi að hann er helsta ógn liðsins á vallarhelmingi andstæðinganna.

Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spánn
Tryggvi Snær hefur haldið áfram að taka miklum framförum ár eftir ár og er nú á sínu fimmta ári sem atvinnumaður í efstu deild á Spáni. Eftir að hafa leikið með Valencia og Monbus Obradoiro færði hann sig yfir til Zaragoza og er nú í herbúðum liðsins þriðja árið í röð. Þar hefur Tryggvi Snær átt fast sæti og leikið stórt hlutverk í liðinu og skilað stærra og stærra framlagi milli ára. Með landsliðinu hefur Tryggvi Snær leikið virkilega vel í síðustu landsliðsgluggum og átt stóran þátt í velgengni liðsins. Þar er Tryggvi með stórt framlag í vörn og sókn og hjálpar liðsfélögum sínum mikið þar sem andstæðingar Íslands leggja ofuráherslu á að stöðva Tryggva hverju sinni sem þeir munu þurfa að halda áfram að gera á næstu árum.

Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 
1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir
1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð
2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir
2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir
2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir
2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir
2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir
2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2011: Jakob Örn Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir
2012: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2013: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2014: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2015: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir
2016: Martin Hermannsson og Gunnhildur Gunnarsdóttir
2017: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
2018: Martin Hermannsson og Hildur Björg Kjartansdóttir
2019: Martin Hermannsson og Helena Sverrisdóttir
2020: Martin Hermannsson og Sara Rún Hinriksdóttir
2021: Elvar Már Friðriksson og Sara Rún Hinriksdóttir
 
Oftast valin Körfuboltamaður og Körfuboltakona ársins:*
12 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010, 2012, 2013, 2014, 2015)
12 Helena Sverrisdóttir (2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015, 2019)
 5 Martin Hermannsson (2016, 2017, 2018, 2019, 2020)
 4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993)
 3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977)
 2 Sara Rún Hinriksdóttir (2020, 2021)
 2 Hildur Björg Kjartansdóttir (2017, 2018)
 2 Jón Sigurðsson (1976, 1978)
 2 Valur Ingimundarson (1984, 1988)
 2 Guðmundur Bragason (1991, 1996)
 2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998)
 2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004)
 
*Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.


#korfubolti