6 jan. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 41/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftaness, sæta tveggja leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness gegn Sindra, sem fram fór þann 27. Desember 2021

Agamál 42/2021-2021

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gunnar Óafsson, leikmaður Stjörnunar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunar gegn Breiðablik, sem fram fór þann 28. desember 2021.