25 jan. 2022Samkvæmt reglugerð um félagskipti er nú opið fyrir félgaskipti yngri flokka leikmanna og leikmanna eldri en 20 ára og verður félagaskiptaglugginn opinn út mánuðinn eða til miðnættis mánudaginn 31. janúar. Eftir það lokar fyrir ÖLL félagskipti út tímabilið.

Það þýðir að engir leikmenn, íslenskir né erlendir, á öllum aldri, geta fengið félagaskipti eftir þann tíma.

Það sama gildir um venslasamninga þar sem þeir lúta reglum um félagaskipti. Undanþága er þó sú að þau leyfi/beiðnir sem borist hafa innan tímarammans til KKÍ og verða í vinnslu fyrir lokun gluggans eru afgreidd áfram, t.d. þegar beðið er eftir leikheimild erlendis frá eða afgreiðslu UTL/VMST í þeim tilfellum sem þess þarf.

Skila má gögnum alveg fram til lokunar gluggans á miðnætti þann 31. janúar en athygli skal vakin á því að leikmenn sem skila inn venjulegum félagaskiptum eftir kl. 16:00 á mánudeginum þann 31. janúar, hljóta fyrst leikheimild á þriðjuaginn 1. febrúar kl. 09:00 eftir að þau eru afgreidd.

Innlend félagsskipti
Skila þarf félagaskiptablöðum útfylltum með undirskrift leikmanns og forsvarsmanni þess félags sem gengið er úr á skrifstofu KKÍ eða sem viðhengi í tölvupósti. Það er á ábyrgð leikmanns/félags að fá undirskrift fyrra félags og þarf hún að vera á félagaskiptablaðinu. Greiða þarf fyrir með millifærslu eða fá undirskrift nýja félagsins ef um skuldfærslu er að ræða í þeim tilfellum sem félag greiðir fyrir skiptin.

Leikheimildir erlendra leikmanna/Óskir um Letter of Clearance (LOC)
Skila þarf inn öllum gögnum sem KKÍ fer fram á auk þess að beiðni um LOC, sé þess er þörf, skal vera kominn í gang. LOC frá sambandi í öðru landi má þó berast eftir 31. janúar og hlýtur leikmaður þá leikheimild frá og með þeim degi þegar það berst að því undanskyldu að öll önnur gögn/greiðslur sem krafist er hafa borist skrifstofu KKÍ og hægt sé þar með að gefa út formlega leikheimild í kjölfarið.

Önnur gögn sem þarf eru afrit af vegabréfi leikmanns og upplýsingar um fyrra lið/land þar sem hann lék áður og upplýsingar um umboðsmann leikmanns sé hann til staðar. Með þessu er hægt að sækja um LOC til FIBA. Þá þarf staðfestingu á tryggingu leikmannsins einnig og senda hana inn til skrifstofu KKÍ.