10 mar. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fimm agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 55/2021-2022

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærða, Sanja Orozovic, leikmaður Fjölnis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölni gegn Njarðvík, sem fram fór þann 2. mars 2022.

Agamál 56/2021-2022

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Frank Aron Booker, leikmaður Breiðabliks, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Breiðabliks og Njarðvíkur í Subwaydeild mfl. kk, sem fram fór þann 3. mars 2022.

Agamál 57/2021-2022

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ólafur Þorri Sigurjónsson, leikmaður Skallagríms, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hattar og Skallagríms í 1. deild mfl. kk, sem fram fór þann 4. mars 2022.

Agamál 58/2021-2022

Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Adam Eiður Ásgeirsson, leikmaður Hattar, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hattar og Skallagríms í 1. deild mfl. kk, sem fram fór þann 4. mars 2022.

Agamál 59/2021-2022

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Sæmundur Hermannsson, þjálfari Leiknis Reykjavík, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur b gegn Leikni Reykjavík, sem fram fór þann 5. Mars 2022.