25 apr. 2022Um helgina var leikið til úrslita í 7. flokki drengja í riðlum A til I eða í níu riðlum víða um land.

Það var Stjarnan sem stóð uppi sem sigurvegari en þeir unnu þrjá leiki af fjórum um helgina á lokamótinu og varð Íslandsmeistari.

Til úrslita í A-riðli léku Aþena-UMFK, Fjölnir, Hamar, KR og Stjarnan. Þjálfari Stjörnustráka er Ingi Þór Steinþórsson.

KKÍ óskar Stjörnunni til hamingju með titilinn!