11 maí 2022

Stelpurnar í 8. flokki stúlkna hjá Stjörnunni urðu Íslandsmeistarar 2022 um síðustu helgi, en leikið var á Meistaravöllum. Flokkurinn hafði verið jafn og spennandi í allan vetur, en í lokaumferðinni voru Stjörnustelpur sterkastar þar sem þær unnu aftur alla sína leiki og lyftu bikarnum í mótslok.

Með Stjörnunni í lokaumferðinni léku Njarðvík, sem varð í öðru sæti, Grindavík, KR og Haukar.

Þjálfarar stelpnanna eru Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic.

Til hamingju Stjarnan!