15 maí 2022

Þór Ak. varð meistari 2. deildar 10. flokks drengja á föstudagskvöld með sigri á Ármanni í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit leiksins í lokin, 61-73. Þjálfari strákanna er Daníel Andri Halldórsson.

Viktor Smári Inguson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 23 stigum og 6 fráköstum.

Til hamingju Þór Ak.!