8 jún. 2022KKÍ hélt um helgina fyrstu æfingahelgi sína fyrir drengi og stúlkur í U14 afrekshópum. U14 eru undanfari að U15 ára landsliði Ísland en í U14 afrekshópum eru það yfirþjálfari KKÍ ásamt vel völdum gestaþjálfurum stjórna ýmsum tækniæfingum og fara yfir komandi áherslur yngri landsliða KKÍ.

U14 æfingahópur í ár eru fyrir ungmenni fædd 2008 og verða haldnar þrisvar yfir sumarið. Það eru yfirþjálfararnir sem boða leikmenn til æfinga sérstaklega, en um 50 leikmenn fá boð úr þessum eina árgangi um að mæta til æfinga.

Yfirþjálfarar Afreksbúða 2022 er Karl Ágúst Hannibalsson hjá drengjum og Andrea Björt hjá stúlkum.

Fyrsta æfingahelgin fór fram um helgina í Grindavík. Helgi tvö verður haldin í íþróttahúsinu í Dalhúsum, Grafarvogi 13.-14. ágúst síðasta æfingahelgin fer svo fram helgina 27.-28. ágúst.