16 ágú. 2022U16 ára landslið stúlkna hélt af stað í morgun til Podgorica, höfuðborgar Svartfjallalands, þar sem EM 2022, FIBA European Championship, fer fram en stelpurnar leika í B-deild Evrópumótsins.

Ísland hefur leik í C-riðli og leika gegn Svíþjóð, Úkraínu, Sviss og Ísrael áður en leikið verður um sæti en keppni hefst á fimmtudaginn í öllum riðlum. 

Hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði og beinum útsendingum frá öllum leikjum á mótinu í opnu streymi á heimasíðu keppninnar hér fyrir neðan:

Heimasíða keppninnar: fiba.basketball/europe/u16bwomen/2022/

Landslið U16 stúlkna · EM 2022
Anna Katrín Víðisdóttir · Hrunamenn
Anna Margrét Hermannsdóttir · KR
Anna María Magnúsdóttir · KR
Díana Björg Guðmundsdóttir · Aþena
Dzana Crnac · Njarðvík
Erna Ósk Snorradóttir · Keflavík
Fjóla Gerður Gunnarsdóttir · KR
Ísold Sævarsdóttir · Stjarnan
Karólína Harðardóttir · Stjarnan
Kristjana Mist Logadóttir · Stjarnan
Matilda Sóldís Svan Hjördísardóttir · Fjölnir
Victoría Lind Kolbrúnardóttir · Skallagrímur

Þjálfari: Hallgrímur Brynjólfsson
Aðstoðarþjálfarar: Stefanía Ósk Ólafsdóttir og Árni Eggert Harðarson
Sjúkraþjálfari: Anna Sóley Jensdóttir · Atlas Endurhæfing