7 sep. 2022

>>SKRÁNING HÉR<<

Framundan eru tvö fjarnámskeið í þjálfaranámi KKÍ, KKÍ 1B og KKÍ 2B. Gott er að hafa í huga að þeir þjálfarar sem hyggjast sækjast eftir því að fara í FECC þurfa hið minnsta að hafa klára þjálfarastig KKÍ 1 og 2 ásamt ÍSÍ 1 og 2. Opnað hefur verið fyrir skráningu á KKÍ 1B og KKÍ 2B, en vakin er athygli á því að aðeins þeir sem hafa greitt fyrir námskeið fá að taka þátt. Við bendum á að hægt er að sækja styrki fyrir þjálfaranámskeiðum, en oft veita stéttarfélög styrki fyrir þátttöku á námskeiðum.
 
Frekari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðu KKÍ, annars vegar um KKÍ 1B og hins vegar um KKÍ 2B.
 
Námskeiðsgjald fyrir KKÍ 1B er kr. 26.000 ef skráð er í síðasta 4. september, kr. 38.000 eftir það. Skráningu lokar sunnudaginn 11. september.
Námskeiðsgjald fyrir KKÍ 1B er kr. 38.000 ef skráð er í síðasta 4. september, kr. 50.000 eftir það. Skráningu lokar sunnudaginn 11. september.