15 sep. 2022

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 03/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Gjorgi Dzolev, þjálfari Fjölnis, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Aftureldingar gegn Fjölni, sem fram fór þann 5 september 2022.

Agamál 4/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Eiríkur Karlsson, leikmaður Vals, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik KR gegn Val, sem fram fór þann 6 september 2022.

Agamál 5/2022-2023

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ágúst Björvinsson, þjálfari Vals, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik KR gegn Val, sem fram fór þann 6 september 2022.