30 sep. 2022Sunnudaginn 2. október fer fram árlegur leikur Subway-íslandsmeistara karla og VÍS-bikarmeistara karla frá síðasta tímabili. 

Í ár eru það íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar Stjörnunnar sem eigast við og fer leikurinn fram í Origo höllinni að Hlíðarenda og hefst hann kl 20:15.

Allur ágóði af miðasölu rennur í minningarsjóð Ölla.

Miðasala fer öll fram á STUBB og athugið að aðgöngukort KKÍ gilda ekki á leikinn.

#korfubolti