14 jan. 2023

Valur varð í dag VÍS bikarmeistarar karla eftir 72-66 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik í Laugardalshöll. 

Kári Jónsson var valinn besti leikmaður úrslitaleiksins, en hann skilaði 22 stigum, 7 stoðsendingum, 4 fráköst og niður 5 af 10 þriggja stiga skotum sínum.

Ástríður Viðarsdóttir frá VÍS afhenti Val 1.000.000 kr. verðlaunafé fyrir sigurinn, sem Lárus Blöndal tók við í leikslok. VÍS afhenti einnig Stjörnunni ávísun að upphæð 500.000 kr. fyrir annað sætið.

Til hamingju Valur!

Myndir: Bára Dröfn/karfan.is og Hafsteinn Snær/karfan.is