15 jan. 2023

Njarðvík varð í dag VÍS bikarmeistari 9. flokks stúlkna eftir  sigur á Breiðablik í úrslitaleik 70-33.

Hulda María Agnarsdóttir var valin maður leiksins en hún skilaði 22 stigum, 10 fráköstum og 5 stolnum boltum.

Til hamingju Njarðvík!

Myndir: Bára Dröfn/karfan.is