15 jan. 2023

Síðustu fjórir leikir VÍS bikarúrslita yngri flokka verða leiknir í dag.

Dagurinn byrjar á leik Njarðvíkur og Breiðabliks í 9. flokki stúlkna kl. 10:00. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.

Annar leikur dagsins er í 11. flokki stúlkna hvar KR og Stjarnan mætast kl. 12:30. Leikurinn verður í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.

Við tekur svo 12. flokks tvíhöfði, fyrst 12. flokkur karla kl. 15:15 þar sem Fjölnir og ÍR mætast, og svo í 12. flokki kvenna kl. 18:00 þar sem Haukar og Aþena/Leiknir/UMFK mætast.

Leikur Fjölnis og ÍR er í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.

Leikur Hauka og Aþenu/Leiknis/UMFK er í beinu streymi á Youtube síðu KKÍ.

Miðasala á leikina er á Stubb.
Leikskrá yfir hátíðana með öllum leikmannalistum liða er að finna hérna