30 jan. 2023Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið liðið sitt fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EuroBasket Women´s 2023 sem fara fram núna í febrúar. 

Leikið verður nú í febrúar heima og að heiman og þar með klárast þessi undankeppni. Mótherjar Íslands í riðlinum eru Spánn, Ungverjaland og Rúmenía. Ísland hefur leikið gegn Rúmeníu tvisvar og Ungverjalandi hér heima í nóvember 2022 fyrir rúmu ári síðan. Ísland náði í einn sigur, í leiknum í nóvember síðastliðinum á heimavelli gegn Rúmeníu og hafði að auki innbyrðis sigur eftir tvo leiki.

Leikir febrúar verða gegn Ungverjalandi og Spáni. Fyrst verður leikið á útivelli gegn Ungverjalandi þann 9. febrúar í Miskolc, og svo hér heima gegn Spáni í seinni leiknum. Heimaleikurinn fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 12. febrúar kl. 19:45 og verður í beinni á RÚV2.

Íslenska liðið mun ferðast út mánudaginn 6. febrúar og vera við æfingar ytra fram að leik.

Íslenska liðið er þannig skipað: 

Nafn · Lið (Landsleikir)
Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (4)
Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (8)
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (14)
Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (4)
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (6)
Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir · Haukar (2)
Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (4)
Hildur Björg Kjartansdóttir · Valur (38)
Isabella Ósk Sigurðardóttir · Njarðvík (10)
Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu (28)
Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar (2)
Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (27)

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson
Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson.
Sjúkraþjálfari: Sædís Magnúsdóttir · Atlas Endurhæfing
Læknir: Unnur Tara Jónsdóttir
Fararstjórn: Kristinn Geir Pálsson, Sigrún Ragnarsdóttir og Hannes S. Jónsson.

Þær sem ekki gátu tekið þátt að þessu sinni vegna meiðsla eru þær Dagný Lísa Davíðsdóttir, Fjölni, Hallveig Jónsdóttir, Val og Helena Sverrisdóttir, Haukum.

Heimasíða keppninnar:
https://www.fiba.basketball/womenseurobasket/2023/qualifiers