16 mar. 2023

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í fjórum agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 67/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Kristófer Kári Arnarsson, leikmaður Hauka, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka gegn Fjölni í 12. flokki karla , sem fram fór þann 7 mars 2023.

Agamál 68/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jeremy Herbert Smith, leikmaður Breiðabliks, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar gegn Breiðablik, sem fram fór þann 9 mars 2023.

Agamál 69/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ragnar Ágúst Nathanaelsson, leikmaður Hamars, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hamars gegn Selfoss, sem fram fór þann 10 mars 2023.

Agamál 70/2022-2023

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, David Guardia Ramos, leikmaður Hattar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur gegn Hetti, sem fram fór þann 11 mars 2023.