11 ágú. 2000Kvennalandsliðið tapaði fyrir Svíum 47-80 í dag á Polar Cup í Bergen. Leikurinn þróaðist líkt og leikurinn gegn Finnum í gær. Ísland var tveimur stigum undir í hálfleik 31-33, en algjört hrun var í síðari hálfleik. Íslenska liðið brotnaði endanlega í fjórða leikhluta, en þá skoruðu Svíar 24 stig gegn 2 Íslendinga. Signý Hermannsdóttir skoraði mesta fyrir íslenska liðið eða 13, en auk þess hirti hún 12 fráköst. Kristín Blöndal kom næst henni með 9 stig.