22 jan. 2001Signý Hermannsdóttir, landsliðskona og fyrrum leikmaður ÍS hefur heldur betur verið að gera það gott með skólaliði sínu í Cameron-háskólanum í Oklahoma í Bandaríkjunum. Í fyrstu umferðinni eftir jól var hún valin leikmaður vikunnar og eftir frammistöðu sína á móti Southwestern Oklahoma Lady Bulldogs. Nú í vikunni gæti hún hlotið nafnbótina á ný. Reyndar töpuðu stelpurnar leiknum 66-61 en tölurnar hennar Signýjar segja allt sem segja þarf um hennar frammistöðu: Mínútur: 28 Stig: 13 Skotnýting: 8/5 63% Vítanýting: 4/3 75% Fráköst: 14 (3 í sókn) Stoðsendingar: 7 Varin skot: 4 Stolnir boltar: 2 Tapaðir boltar: 1