26 feb. 2001Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, og forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Hr. Ellert B. Schram, heiðruðu báðir Körfuknattleikssamband Íslands með nærveru sinni í 40 ára afmælishófi sambandsins sem haldið var í Félagsheimili Kópavogs s.l. laugardag. Tóku þeir báðir til máls og fluttu skemmtileg ávörp til afmælisbarnsins og þeirra aðila sem starfað hafa innan hreyfingarinnar í gegnum árin.