20 mar. 2001Það verða KR og Keflavík sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna í ár eins og undanfarin ár. KR sigraði ÍS í gærkvöld 46-67 í Kennaraháskólanum og komst þar með í úrslit ásamt sem lagði KFÍ í tveimur leikjum. Úrslitarimma KR og Keflavíkur hefst nk. mánudag, 26. mars í KR-húsinu. Þetta er fjórða árið í röð sem KR og Keflavík leika til úrslita eða allt frá árinu 1998. Árið áður (1997) varð UMFG Íslandsmeistari eftir sigur á KR í úrslitum. Árið 1996 léku KR og Keflavík, en árið 1995 voru það Breiðablik og Keflavík og þá varð Breiðablik Íslandsmeistari.