20 mar. 2001Tindastóll lagði Grindavík að velli 79-75 og Njarðvík lagði Skallagrím 87-57. Grindavík var 9 stigum yfir eftir þriðja leikhluta en Tindastólsmenn snéru leiknum við og unnu með 4 stigum. Í Njarðvík var jafnræði með liðunum fram að hálfleik en þá stungu Njarðvíkingar af og unnu með 30 stigum. Í undanúrslitum sem hefjast næstkomandi sunnudag, mætast deildarmeistarar UMFN og Íslandsmeistarar KR annars vegar og Tindastóll og Keflavík hins vegar.