21 mar. 2001Stjarnan og Breiðablik tryggðu sér sæti í Epson deildinni að ári með því að sigra suðurlandsliðin, Þór Þ. og Selfoss í kvöld. Stjarnan sigraði Þór 97-85 í hörkuleik í Þorlákshöfn og eru þeir því 20. félagið sem vinnur sér rétt til að leika í Úrvalsdeild frá því hún var stofnuð 1978. Breiðablik sigraði Selfoss 77-101 á Selfossi. Stjarnan og Breiðablik munu svo eigast við í leikjum um sæmdarheitið Íslandsmeistarar í 1. deild karla, það lið sem fyrr sigrar 2 leiki hlýtur nafnbótina.