25 ágú. 2002Ísland sigraði Noreg með einu stigi, 77-76, eftir spennandi lokamínútur. Þrátt fyrir tvo sigra og eitt tap lenti Ísland i þriðja sæti þar sem innbyrðis stigaskor var liðinu óhagstættt. Svíar, Finnar og Íslendingar voru med 4 stig eftir mótið en stórtap gegn Svíum í gær gerði þad að verkum að Ísland fékk bronsið. Svíar unnu Polar Cup, Finnar i öðru og heimamenn ráku lestina en þeir töpudu öllum sínum leikjum. Ísland var sterkari aðilinn í leiknum gegn Noregi og hafði mest 16 stiga forskot í fyrri hálfleik. Norðmenn gáfust aldrei upp og komu alltaf til baka. Nokkrum sinnum komst Ísland 8-12 stigum yfir leiknum og í stað þess að losa sig við Norðmennina hleyptu strákarnir gestgjöfunum aftur í leikinn og stóð tæpt í lokin. Stig Islands: Jón Arnór Stefánsson 22 (7/11 fg), Brenton Birmingham 19 (4 stods., 7/14 fg), Logi Gunnarsson 15 (4/11 fg) Helgi Magnússon 8 (3/3 fg), Gunnar Einarsson 3, Friðrik Stefánsson 3 (2 frakost), Páll Axel Vilbergsson 3 (4 frakost), Fannar Ólafsson 2 (6 fráköst), Herbert Arnarson 2.