26 ágú. 2002Íslenska landsliðið kom heim í gærkvöldi frá Noregi eftir að hafa lokið keppni á Polar Cup þar sem liðið lék þrjá leiki, gegn Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Það er gaman að segja frá því að á öllum leikjum liðsins átti liðið nokkra suðningsmenn á pöllunum, en í Noregi eru margir Íslendingar búsettir. Á meðal þeirra sem komu og studdu strákana voru knattspyrnumennirnir Ríkharður Daðason, Tryggvi Guðmundsson og Jóhann Guðmundsson sem allir leika við góðan orðstír í norska boltanum. Jóhann bauð síðan öllu liðinu á leik á laugardagskvöldinu þar sem lið hans Lynn vann góðan sigur. Jóhann lék reyndar ekki vegna meiðsla en Helgi Sigurðsson skoraði sigurmarkið í leiknum. Þá lét hinn geðþekki þjálfari Logi Ólafsson sig ekki vanta og sá Ísland vinna Finnland. Fleiri kunnugleg andlit voru í stúkunni og mætti hinn síungi Tómas Holton með fjölskylduna ásamt Matthíasi Einarssyni, fyrrum leikmanni KR. Síðast en ekki síst var Guðni ,,Dunni" Ölversson í essinu sínu allt mótið og lifði sig vel inn í leikina.