22 okt. 2002Vegna húsnæðisleysis verður að fresta eldri manna mótinu í körfuknattleik sem halda átti í Íþróttahöllinni á Akureyri 26. október næstkomandi. Mótinu er frestað um óákveðinn tíma en verður að öllum líkindum haldið fljótlega upp úr áramótum. Þegar höfðu átta lið skráð sig til leiks. Skráning og frekari upplýsingar um fyrirkomulag mótsins er hægt að fá hjá Jóhanni R. Sigurðssyni, skipuleggjanda mótsins, (ninny@simnet.is).