8 nóv. 2002Harlem Globetrotters léku sinn fyrsta leik fyrir fullu húsi áhorfenda í Íþróttahúsinu í Keflavík í gærkvöld. Er óhætt að segja að stemmingin hafi verið hreint út sagt frábær í húsinu og allir skemmt sér mjög vel. Sýningin var vel heppnuð og sáust frábærir taktar á stundum. Næsta sýning verður á Egilsstöðum í kvöld og svo í Laugardalshöllinni á morgun kl. 14.00 og kl. 20.00. Miðasala gengur mjög vel og væntalega verður mikil stemming.