11 nóv. 2002Vel heppnaðri heimsókn körfuknattleikssnillinganna í Harlem Globetrotters til Íslands er lokið. Í gær skemmtu þeir norðlendingum á tveimur sýningum á Akureyri og á Sauðárkróki. Troðfullt var á tvær sýningar þeirra í Laugardalshöllinni á laugardag. Meðal gesta í sýningunni á laugardagskvöld var forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson. Snillingarnar brugðu á leik með Ólafi Ragnari og Dorit fyrir sýninguna og fór vel á með gestunum bandarísku og forsetanum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. mt. Leikmenn Harlem Globetrotters kenna Ólafi Ragnari að snúa boltanum á fingri sér.