13 nóv. 2002Aganefnd KKÍ kvað í gær upp úrskurð í máli Ágústs Hilmars Dearborn leikmanns UMFN, sem kærður var til aganefndar í síðustu viku fyrir að sparka í liggjandi andstæðing. Nefndin sá umrætt atvik í sjónvarpi og einnig lá fyrir afsökunarbeiðni frá Ágústi þar sem hann segist harma þetta atvik mjög. Bréf Ágúst hefur verið birt í fjölmiðlum og á netinu. Úrskurður aganefndar var sá að Ágúst skuli sæta sex leikja banni. Tveir aðrir leikmenn voru dæmdir í leikbann á fundi aganefndar í gær. Sidri Sigurðsson leikmaður KR b var dæmdur í eins leiks bann vegna brottrekstrar sem og Jakbob Ingi Ásgeirsson leikmaður Ármanns/Þróttar sem einnig var rekinn af leikvelli. Leikbönn þessi taka gildi frá og með hádegi föstudaginn 15. nóvember.