13 nóv. 2002Dregið verður í 32 liða úrslit í bikarkeppni KKÍ&DORITOS í dag miðvikudaginn 13. nóvember kl. 15:00 í sal ÍSÍ í Laugardal. Alls verða 28 lið í pottinum og því ljóst að fjögur félög munu sitja hjá í 1. umferð keppninnar. Eftirtalin félög verða pottinum: Valur, KR, Snæfell, Skallagrímur, Keflavík, Tindastóll, ÍR, UMFG, UMFN, Haukar, Hamar, Breiðablik, Selfoss/Laugdælir, ÍS, Þór Þorl., Fjölnir, KFÍ, Stjarnan, Ármann/Þróttur, Höttur, Reynir S., HK, Smári, Reynir H. Grundafjörður, KR b, Keflavík b, Selfoss/Laugdælir b. Alls 28 félög. Það verða því 4 félög sem sitja hjá og komast beint í 16-liða úrslit. Hjá konunum er 14 lið skráð í bikarkeppnina: KR, ÍS, Keflavík, UMFG, UMFN, Haukar, ÍR, Breiðablik, Hamar, Tindastóll, Laugdælir, KFÍ, Hekla og Keflavík b. Dregið verður hjá konunum um leið og dregið verður í 16 liða úrslit hjá körlum. Fulltrúum fjölmiðla og vefsíðna er sérstaklega boðið að vera viðstaddir dráttin sem og fulltrúm félaganna.