23 nóv. 2002Stúdínur urðu í dag fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001604.htm [v-]Kjörísbikars kvenna[slod-] þegar liðið vann tvo örugga sigra á KFÍ á Ísafirði á tveimur dögum. ÍS vann leikina [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001604/16040202.htm [v-]70-32 [slod-]og [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001604/16040302.htm [v-]82-27[slod-] og bætist því í hóp Keflavíkur, KR og Grindavíkur sem höfðu áður tryggt sér sæti meðal hinna fjögurra fræknu. Undanúrslitin fara fram 11. desember næstkomandi og úrslitaleikurinn tíu dögum síðar.