29 nóv. 2002Í morgun barst neyðarkall frá Blóðbanka Íslands þar sem blóðstaða bankans er í hættulegu lágmarki. Ég hvet alla körfuknattleiksfélaga til þess að bregðast við kalli þessu, og reyndar alla félaga íþróttahreyfingarinnar. Íþróttamenn byggja líf sitt á heilbrigðum gildum, og eru í góðu formi til þess að gefa af blóði sínu til neyðar þeirra sem gangast þurfa undir aðgerðir vegna slysa eða sjúkdóma. Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ."