4 des. 2002Körfuknattleikssamband Íslands hefur ráðið Hjört Harðarson næsta landsliðsþjálfara íslenska kvennalandsliðsins í körfuknattleik. Hjörtur tekur við af Sigurði Ingimundarsyni sem hefur þjálfað liðið sl. eitt og hálft ár. Samningur Sigurðar og KKÍ rann út fyrir nokkru og gaf Sigurður ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem landsliðsþjálfari kvenna sökum anna. Hjörtur hefur undanfarið ár verið aðstoðarmaður Sigurðar með kvennalandsliðið og þekkir því vel til á þeim vettvangi. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem þjálfari hjá Þór Akureyri sem og hjá Keflavík. Hjörtur er margreindur landsliðsmaður í körfuknattleik, með mikla reynslu sem vafalaust á eftir að nýtast honum vel í starfi hans sem landsliðsþjálfari kvennalandsliðsins. Um leið og KKÍ þakkar Sigurði Ingimundarsyni frábær störf í þágu kvennalandsliðsins býður það Hjört Harðarson velkominn til starfa og væntir mikils af stöfum hans í framtíðinni. Næsta verkefni kvennalandsliðsins er þátttaka í alþjóðlegu móti milli jóla og nýárs í Luxembourg þar sem liðið mun leika gegn Svíum, Englendingum auk heimamönnum í Luxembourg.