18 des. 2002Valsmenn halda sína árlega firma og félagahópakeppni á milli jóla og nýárs. Mótið fer fram föstudag 27., laugardag 28. og sunnudag 29. desember 2002. Leikið verður í báðum sölunum að Hlíðarenda. Mótafyrirkomulagið fer eftir fjölda þátttökuliða. Leikið verður í riðlum og úrslitakeppni fer fram á sunnudeginum þar sem öll liðin leika a.m.k. einn leik. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Á laugardeginum og sunnudeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Breyting frá fyrri mótum er sú að nú er er ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Intersportdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 15.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra. Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökkum fyrir það liðna. Hannes Birgir Hjálmarsson hannesb@centrum.is sími: 8929376 Torfi Magnússon tm@ismennt.is sími:6618012