8 jan. 2003Þjálfarar Stjörnuliðanna þeir Ingi Þór Steinþórsson og Friðrik Ingi Rúnarsson hafa valið 7 leikmenn til viðbótar við þá sem valdir voru í byrjunarliðin á netinu. Öll félögin í Intersport-deildinni eiga fulltrúa í Stjörnuleiknum. Ingi Þór Steinþórsson þjálfar Essó-Norður-liðsins valdi eftirtalda leikmenn í sitt lið: Skarphéðinn Ingason KR, Sigurður Þorvaldsson ÍR, Eugene Christopher ÍR, Jón Ólafur Jónsson Snæfelli, Donte Mathis Skallagrím, Hafþór Gunnarsson Skallagrím, Bjarki Gústafsson Val. Fyrir voru í byrjunarliðinu: Darrell Flake KR, Magni Hafsteinsson KR, Hlynur Bæringsson Snæfelli, Eiríkur Önundarson ÍR, Clifton Cook Tindastól. Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Stakkavíkur-Suður-liðsins valdi eftirtalda leikmenn í sitt lið: Sverrir Sverrisson Keflavík, Lárus Jónsson Hamri, Darrel Lewis UMFG, GJ Hunter UMFN, Gunnar Einarsson Keflavík, Páll Axel Vilbergsson UMFG, Marel Guðlaugsson Haukum. Fyrir voru í byrjunarliðinu: Pálmi Freyr Sigurgeirsson Breiðabliki, Helgi Jónas Guðfinsson UMFG, Damon Johnson Keflavík, Stevie Johnson Haukum, Friðrik Stefánsson UMFN. Stjörnuleikurinn verður að þessu sinni að Ásvöllum í Hafnarfirði kl. 15:00 á laugardaginn. Í hálfleik verður að venju keppt í þriggja stiga skotum og troðslum.