23 jan. 2003Njarðvíkurstúlkur komu flestum ef ekki öllum á óvart í kvöld og urðu fyrstar til að vinna Keflavík, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001601/16011302.htm[v-]66-64[slod-], í lokaleik þrettándu umferðar [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001601.htm[v-]1. deildar kvenna[slod-] en Keflavík hafði fyrir leikinn unnið alla 19 leiki tímabilsins, 12 í deildinni, fjóra í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001604.htm[v-]Kjörísbikarnum[slod-] og þrjá í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001596.htm[v-]bikarkeppni KKÍ og Doritos[slod-]. Eva Stefánsdóttir stal boltanum undir körfu Keflavíkur og skoraði sigurkörfuna um leið og klukkan rann út. Keflavík hafði 17 stiga forustu í hálfleik og hafði unnið þrjá fyrri leiki liðanna með samtals 77 stigum en það taldi lítið í Njarðvík í kvöld. Keflavíkurliðið hitti aðeins úr 5 af 30 skotum sínum í seinni hálfleik og tapaði að auki 16 boltum í hálfleiknum. Keflavík skoraði þannig aðeins 17 stig í seinni hálfleiknum, tapaði þriðja leikhluta 6-17 og þeim fjórða 11-19. Það dugði þeim ekki að vinna fráköstin 27-15 í þessum martraðarhálfleik liðsins. Atkvæðamestar hjá Njarðvík: Krystal Scott 28 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar Auður Jónsdóttir 16 stig, hitti úr 4 af 7 þriggja stiga skotum Helga Jónasdóttir 7 stig, 9 fráköst, 3 varin skot Eva Stefánsdóttir 6 stig, 3 stolnir Guðrún Ósk Karlsdóttir 6 stig, 10 fráköst Atkvæðamestar hjá Keflavík: Birna Valgarðsdóttir 19 stig, 7 fráköst, hitti úr 5 af 7 þriggja stiga skotum, skoraði 14 stig í fyrsta leikhluta (4 þriggja stiga körfur) Erla Þorsteinsdóttir 14 stig, 6 fráköst Kristín Blöndal 8 stig, 5 fráköst Sonia Ortega 6 stig, 18 fráköst (8 í sókn), 5 stoðsendingar Svava Ósk Stefánsdóttir 6 stig Keflavíkurliðið hafði unnið öll hin liðin og samtals sex deildarleiki í röð með meira en 20 stigum. Frá því Sonia Ortega kom til landsins hafði Keflavík unnið 15 af 17 leikjum með meira en 20 stigum og þá tvo sem upp á vantaði báða með 19 stigum.