27 feb. 2003Skráningarfrestur í framhaldsskólamót KKÍ 2003 hefur verið framlengdur til 5. mars nk. Nokkrir skóla hafa skráð sig í mótið, en betur má ef duga skal. Mótið verður að þessu sinni haldið á Sauðárkróki helgina 15.-16. mars og verður í umsjá FNV (Fjölbrautarskóla norðurlands vestra). Boðið verður uppá gistingu í heimavist FNV og kostar hún 500 kr. á mann. Panta verður fyrirfram. Einnig verða veitingastaðir á Sauðárkróki með sérstök tilboð í gangi í tilefni mótsins. Þá er í athugun að halda dansleik á laugardagskvöldinu.