3 apr. 2003Keflavíkurkonur unnu 30 af 33 leikjum sínum í vetur og þrjá af fjórum titlum í boði, Íslandsmeistaratitilinn, Kjörísbikarinn og Deildarmeistaratitlinn. Liðið vann 19 fyrstu leiki tímabilsins og allir 14 heimaleikir liðsins unnust í vetur þar af 12 þeirra með meira en 20 stiga mun. Árangur kvennaliðs Keflavíkur í vetur: Deildarkeppni: 18 sigrar, 2 töp Úrslitakeppni: 5 sigrar, 0 töp Bikarkeppni: 3 sigrar, 1 tap Kjörísbikarkeppni: 4 sigrar, 0 töp Samtals: 30 sigrar, 3 töp mt: Lið Íslandsmeistaranna: Anna María Sveinsdóttir (spilandi þjálfari), Birna Valgarðsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Lára Gunnarsdóttir, Kristín Blöndal (fyrirliði), Marín Rós Karlsdóttir, Rannveig K Randversdóttir, Sonja Kjartansdóttir, Sonja Ortega, Svava Ósk Stefánsdóttir, Vala Rún Björnsdóttir.