3 apr. 2003Keflavíkurkonur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna í tíunda sinn í kvöld með [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380403.htm [v-]82-61[slod-] sigri á KR í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu. KR hafði verið Íslandsmeistari tvö síðustu árin og þar með lauk lengstu bið eftir Íslandmeistaratitli kvenna í Keflavík í 15 ár en aldrei leið meira en ár á milli Íslandsmeistaratitla hjá Keflavíkurkonum á árinum 1988 til 2000. Það var aðeins árin 1991 (ÍS), 1995 (Breiðablik), 1997 (Grindavík) og 1999 (KR) að titilinn fór ekki til Keflavíkur. Þetta er ennfremur fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins frá 2000 því karlarnir unnu síðast 1999. Keflavík vann úrslitaeinvígið 3-0 og fór þar með taplaust í gegnum úrslitakeppnina að þessu sinni en það er í fyrsta sinn sem hið sigursæla liða Keflavíkur afrekar slíkt. Íslandsmeistaratitlar Keflavíkur eftir úrslitakeppni: 1993 5 sigrar, 1 tap 1994 5 sigrar, 2 töp 1996 5 sigrar, 1 tap 1998 5 sigrar, 1 tap 2000 5 sigrar, 2 töp 2003 5 sigrar, 0 töp Keflavíkurkonur unnu 30 af 33 leikjum sínum í vetur og þrjá af fjórum titlum í boði, Íslandsmeistaratitilinn, Kjörísbikarinn og Deildarmeistaratitlinn. Liðið vann 19 fyrstu leiki tímabilsins og allir 14 heimaleikir liðsins unnust í vetur þar af 12 þeirra með meira en 20 stiga mun. Árangur kvennaliðs Keflavíkur í vetur: Deildarkeppni: 18 sigrar, 2 töp Úrslitakeppni: 5 sigrar, 0 töp Bikarkeppni: 3 sigrar, 1 tap Kjörísbikarkeppni: 4 sigrar, 0 töp Samtals: 30 sigrar, 3 töp Anna María Sveinsdóttir, spilandi þjálfari Keflavíkur var að verða Íslandsmeistari í tíunda sinn og fyrirliðinn Kristín Blöndal, sem lyfti bikarnum í fyrsta sinn (sjá mynd), var að verða meistari í áttunda sinn. Erla Þorsteinsdóttir varð síðan meistari fimmta sinn á ferlinum. Úrslitakeppni 1. deildar kvenna 2003 Deildarmeistari: [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001601/KEFLAVIK.htm [v-]Keflavík[slod-] Undanúrslit: Keflavík 2-0 Njarðvík {[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380101.htm [v-]87-62[slod-], [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380201.htm [v-]79-72[slod-]} KR 2-1 Grindavík {[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380102.htm [v-]71-55[slod-], [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380202.htm [v-]67-72[slod-], [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380302.htm [v-]74-54[slod-]} Úrslitaeinvígi: Keflavík 3-0 KR {[v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380401.htm [v-]75-47[slod-], [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380402.htm [v-]82-70[slod-], [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/17380403.htm [v-]82-61[slod-]} Íslandsmeistari: [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001738/KEFLAVIK.htm[v-]Keflavík[slod-] Lið Íslandsmeistaranna: Anna María Sveinsdóttir (spilandi þjálfari), Birna Valgarðsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Lára Gunnarsdóttir, Kristín Blöndal (fyrirliði), Marín Rós Karlsdóttir, Rannveig K Randversdóttir, Sonja Kjartansdóttir, Sonja Ortega, Svava Ósk Stefánsdóttir, Vala Rún Björnsdóttir. Undir greinum hér á KKÍ-síðunni má síðan finna uppfærðar tölfræðiupplýsingar um sögu úrslitakeppni kvenna sem hefur verið við lýði síðan vorið 1993 er hún fór fram í fyrsta sinn. Grein þessa má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=144[v-]hér[slod-].