4 jún. 2003Íslenska karlalandsliðið sigraði lið San Marínó með 67 stigum gegn 64 í öðrum leik sínum í riðlakeppni Smáþjóðaleikanna og hefur því fullt hús stiga. Staðan í hálfleik var 35 - 25 fyrir Ísland. Íslenska liðið leiddi allan leikinn fram í fjórða leikhluta þegar San Marínómönnum tókst að jafna leikinn og komast yfir þegar aðeins 2 mínútur voru til leiksloka. Lokamínúturnar voru æsispennandi og þegar 14 sekúndur voru eftir var staðan 65 - 64 fyrir Ísland og íslenska liðið átti boltann undir eigin körfu. Damon fékk boltann, tvídekkaður og átti erfiða sendingu á Loga sem náði knettinum en dæmd á hann skref. San Marínómenn áttu svo skot sem dansaði á körfuhringnum en fór ekki ofaní. Magnús Þór Gunnarsson tók frákastið og var brotið á honum í sama mund og lokaflautan gall. Magnús setti niður bæði vítaskotinn. Þessa leiks verður ekki minnst fyrir áferðafallegan körfubolta, en sigur vannst og það er það sem skiptir máli í þessu móti. Markmiðið er enn það sama, að vinna gull á leikunum. Liðið mætir Andorra á morgun kl. 15.30 og stúlkurnar leika við Kýpur kl. 09.00 Stigaskor Íslands; Damon 23, Helgi 10, Magnús 9, Logi 8, Páll Axel 6, Baldur 4, Jón Nordal 4 og Gunnar 2. Myndin er af Helga Magnússyni sem átti mjög góðan leik í kvöld.