5 jún. 2003Promotion cup U-85 kvenna verður haldið 5.-9 ágúst á Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrsta æfingahelgin verður nú um helgina og er 30 manna æfingahópur. Eftir helgina verður hópurinn skorinn niður í 16. Kjarninn í þessu liði mun verða úr U-84 og U-86 sem kepptu á Norðurlandarmótinu í Svíþjóð um síðastliðna helgi. Næstu æfingarnar verða á Ásvöllum sem hér segir: lau. 7.júní 10.00-12.00 og 14.00-16.00 sun. 8.juní 10.00-12.00 og 14.00-16.00 Æfingaáætlun verður sem hér segir: lau. 21. júní sun. 22. juní fim. 26. júní fös. 27. júní Frá 7. júlí og fram af móti mun liðið æfa 5 til 6 sinnum í viku. Þjálfarar liðsins eru Ágúst S. Björgvinsson og Skúli Auðunsson, en myndin er af þeim.