6 jún. 2003Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér bronsverðlaunin á Smáþjóðaleikunum með því að sigra lið Lúxemborgar í æsispennandi leik með 60 stigum gegn 56. Íslenska liðið byrjaði leikinn mjög vel og komst í 9-2 og leiddi síðan 20-14 eftir fyrsta leikhluta. Í hálfleik var staðan 33-26 Íslandi í vil. Í þriðja leikhluta sótti lið Lúxemborgar á íslensku stúlkurnar og minnkuðu forskot íslenska liðsins niður í tvö stig. Í fjórða leikhluta komust Lúxemborgarar 5 stigum yfir 48-53 en 8 stig Signýjar Hermannsdóttur í röð héldu Íslandi inn í leiknum og gott betur því liðið náði þriggja stiga forystu 56-53. Á lokamínútunum var spennan mikil, mistök á báða bóga en íslenska liðið hélt haus og innbyrti 4 stiga sætan sigur á Lúxemborg 60-56 og þar með bronsverðlaun á leikunum. Miðherjar íslenska liðsins léku frábærlega í dag, þær Erla Þorsteinsdóttir og Signý Hermannsdóttir sem skoruðu samtals 29 stig og tóku 22 fráköst. Þá nýtti Rannveig Randversdóttir tækifæri sitt þegar Hjörtur Harðarson þjálfari setti hana í byrjunarliðið og skoraði 11 stig og nýtti 5 af 6 skotum sínum. Þriggja stiga skotin gengu hinsvegar alls ekki og gerði liðið ekkert stig úr 11 tilraunum. Atkvæðamestar hjá Íslandi voru Erla Þorsteinsdóttir með 17 stig og 8 fráköst (5 sóknarfráköst), Signý Hermannsdóttir 12 stig, 14 fráköst, 4 stolnir boltar og 3 varin skot. Rannveig Randversdóttir 11 stig á 15 mínútum, Hanna Kjartansdóttir 5 stig, Alda Leif Jónsdóttir 5 stig, Hildur Sigurðardóttir 4 stig, 6 fráköst og 4 stolnir boltar, Birna Valgarðsdóttir, Svandís Sigurðardóttir og Helga Þorvaldsdóttir gerðu allar 2 stig.