6 jún. 2003Félagar í körfuknattleiksdeild Þórs lögðu af stað dripplandi frá Egilsstöðum til Reykjavíkur síðdegis í gær. Farið var bæði norður og suðurleiðina. Er þetta gert til stuðnings Regnbogabörnum sem standa fyrir landssöfnuninni „Draumur að veruleika“. Söfnunarsíminn er 511 2580. Dripplinu líkur á máudaginn, en þá munu Þórsararnir hittast við borgarmörk Reykjavíkur og halda þaðan í Vetrargarðinn í Smáralind, þar sem KKÍ mun standa fyrir körfuboltahátíð.