31 júl. 2003Hið árlega And 1 körfuboltanámskeið fyrir stelpur og stráka verður haldið í síðasta sinn í sumar í Valsheimilinu 11. - 15 ágúst nk. frá kl. 9.00 - 12.00 og 13.00 - 16.00. Námskeiðið verður undir stjórn Ágústs Björgvinsonar, unglingalandsliðsþjálfara og þjálfara úrvalsdeildarliðs Vals sl. vetur. Ágúst hefur mikla reynslu sem yngriflokka þjálfari og var einnig yngsti úrvalsdeildarþjálfarinn síðastliðinn vetur, þegar hann tók við þjálfun mfl. Vals.Hann er nú aðstoðarþjálfari unglingalandsliðs drengja, aðalþjálfari stúlknalandsliðsins og hefur unnið við fjölda æfingabúða í Bandaríkjunum, m.a. Duke University og Five Star Basketball Camp. Á námskeiðunum verður lögð áhersla á undirstöðuatriði auk leikja og ýmissa keppna. Misstu ekki af síðasta And 1 körfuboltanámskeiðinu á þessu ári. Á undanförnum árum hafa yfir 500 leikmenn komið á námskeiðin. Margir skemtilegir og góðir gestir koma í heimsókn Vegleg And 1 verðlaun verða veitt þeim sem skara framúr. Skráning fer fram á E-mail asb@visir.is eða með SMS á 696-9387