1 ágú. 2003Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum fæddum 1986 og síðar mun í næstu viku taka þátt í undankeppni Evrópumótsins. Mótið ver fram í Chiavenna á Ítalíu. Í riðili með Íslendingum eru auk Ítala,Grikkland,Slóvenía,Holland og Skotland. Þessi riðill er mjög sterkur þar sem Ítalir, Grikkir og Slóvenar eru á meðal þeirra allra bestu í heiminum í dag. Þrjár efstu þjóðirnar komast áfram í keppninni. Leikjaplan Íslands er eftirfarandi: 6. ágúst kl. 21.30 Ísland - Ítalía 7. ágúst kl. 19.15 Ísland - Skotland 8. ágúst kl. 17.00 Ísland - Grikkland 9. ágúst kl. 17.00 Ísland - Slóvenía 10. ágúst kl. 19.15 Ísland - Holland Liðið heldur til Ítalíu seinnipartinn á þriðjudaginn 5.ágúst n.k. Liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Jóhann Árni Ólafsson, Njarðvík Brynjar Þór Björnsson, KR Jakob Egilsson, ÍR Brynjar Þór Kristófersson, Fjölnir Krsitján Sigurðsson, Njarðvík Baldur Ólafsson, ÍR Alexander Dungal, Val Tryggvi Pálsson, Fjölni Bjarki Oddson, Þór Akureyri Jón Gauti Jónsson, Keflavík Ólafur Torfason, Þór Akureyri Pavel Ermolinski, ÍR Þjálfari: Benedikt Guðmundsson Aðst.þjálfari: Einar Árni Jóhansson Fararstjóri í ferðinni verður Hannes S.Jónsson varaformaður KKÍ og dómari með í ferð verður Sigmundur Már Herbertsson sem nýlega hlaut alþjóðlegt dómaraskítreini.