6 ágú. 2003Sigur Íslands á Gíbraltar í gær er stærsti sigur Íslands í 18 ára landsleik kvenna hingað til, en lokatölur voru 97-15. Fyrir leikinn í gær var 90-32 sigur á Skotum árið 1996 stærsti sigurinn í þessum aldursflokki. Leikurinn í gær var 44. landsleikur Íslands í 18 ára flokki kvenna. Þetta var aðeins 13. sigurinn því 31 leikur hefur tapast í þessu aldursflokki hingað til. Stigamunurinn fyrir leikinn í gær var því óhagstæður, 2152-2845. Liðið setti einnig stigamet í leiknum því flest stig í einum leik fyrir leikinn í gær voru 90 en meðaltalið 50 stig. Þá var stigamunurinn í hverjum leik óhagstæðum uppá -16,1 stig fyrir leikinn í gær, en eftir stórsigurinn á Gíbraltar er muninn nú kominn í -13,9 stig. Nú er bara að sjá hvort þessi munur á eftir að minnka enn frekar í mótinu. Hægt er að [v+]http://www.kki.is/landslid.asp[v-]skoða landsleikjaskrár allra landsliða Ísland hér[slod-] á vefnum. Ísland mætir Andorra kl. 19:00 í kvöld, en þar á undan leika Malta og Gíbraltar kl. 17:00. mt: Úr leik Íslands og Gíbraltar í gær.